Sunday, January 25, 2009
Thursday, January 08, 2009
Töskur á hjólum

(Lars Saabye Christensen: Hálfbróðirinn)
Getur maður saknað þess sem hefur enn ekki verið fundið upp? Ekki ef marka má þetta svar Gunnars Karlssonar á Vísindavefnum. Annars var ég einu sinni staddur í allfjölmennum samræðum þar sem innkaupastjóri bókasafns jafnaðarmanna tók til máls þegar töskur á hjólum bárust í tal. Hann sagði: By the way, ég vil benda á hvað það er fáránlegt hvað töskur á hjólum urðu til seint. Eins og þetta er lógískt. Samt voru báðar uppfinningar til allan þennan tíma; töskur og hjól. Þessi gáfulega athugasemd hitti beint í mark og allir viðstaddir urðu impóneraðir af innsæi og greind innkaupastjórans. Ég var sá eini á staðnum sem ekki fékk glýju í augum, enda var maðurinn að stela pælingunni með haus og hala beint úr samræðu við mig nokkrum dögum fyrr. Ég ákvað hins vegar að gera ekki mál úr þessu, enda hafði ég sjálfur stolið þessu úr bókinni Timbuktu eftir Paul Auster.
Wednesday, January 07, 2009
Góð lög styrkja :)

Yazoo Street Scandal
Stranded out in the night,
Eliza took me down
To see the widow give
Rain to the town.
It’s against the law
To be a tonic man,
But the widow knows
She’s got the upper hand.
So I went on in
Feelin’ kinda wheezy.
You know she soothed my mind, boys,
She rocked me kinda slow and easy
All day and all night.
Pick a card before you go
It’s a long trip to mexico.
Eliza wait by the door,
I can’t stay here anymore, no, no.
Then she took a pill
She washed her feet in the mud
She said "look out son,
You know, I just ordered a flood
For forty days and forty nights".
Then I dropped my shoes,
Eliza called my name.
She said it looked to her
Like it’s gonna rain.
Then the cotton king
Came in chokin’
And the widow laughed and said:
"i ain’t jokin’.
Take once for all"
She said "now don’t ya tease me.
I just fell in love, boy,
So rock me kinda slow and kinda easy,
All day and all night."
Sweet william said
With a drunken head:
"if I had a boat,
I’d help y’all float".
Eliza stood there watching,
William in a trance,
As the widow _did_ the st. vitus dance. [? ]
But just then an old man
With a boat named "breezy"
Said: "you can ride with clyde, boys,
If you rock it kinda slow and easy,
All day and all night".
Sunday, January 04, 2009
Góð hugmynd fyrir þau ykkar sem vilja skrá nöfn sín á spjöld Íslandssögunnar ódýrt
Vissuð þið að Thorkillísjóður er enn til? Skv. athugun á reikningi námu eignir sjóðsins 128.000 krónum árið 2003. Það er semsagt billegt að tvöfalda þá upphæð gegn þeirri kröfu að nafni sjóðsins verði breytt og hann kenndur við nýja verndarann. Eða ætla forsvarsmenn sjóðsins að amast við svo rausnarlegri gjöf með sögulegum rökum? Skora á einhvern að láta á það reyna.





